Hugrenningar VilliKattarins

31.10.2007 10:29:58 / wildcat

Negrastrákur á jólaballi

Í allri þessari umræðu um tíu litlu negrastrákana gat ég ekki stillt mig um að blogga smá eftir þónokkuð langt hlér. Fyrir nokkrum árum þar sem ég var að skemmta á jólaballi á leikskóla lenti ég í "skemmtilegri" lífsreynslu þar sem þetta margumtalaða ljóð kom við sögu. Þar var leikskólinn sjálfur að sjá um tónlistina og ég gekk í kringum jólatréð með litlu börnunum eins og venjan er á svona jólaböllum. Tónlistin sem var í boði var íslenskur geisladiskur með jólatrésskemmtanalögum, öllum þessum sígildu. Eftir þónokkra hringi í kringum tréð kom þetta umtalaða ljóð um 10 litla negrastráka og það versta við það var að börnin tóku öll undir í sakleysi sínu og eitt barnanna sem ég leiddi á þessu augnabliki var einmitt lítill sætur negrastrákur sem tók líka undir. Ég get ekki sagt að mér hafi liðið vel á þessari stundu og hef ég oft velt fyrir mér hvað þessum leikskólakennurum gekk til með því að spila þetta lag. Ég verð að segja að mér finnst endurútgáfa þessarar bókar vera skref aftur til þess tíma þar sem bandaríski herinn mátti ekki hafa þeldökka hermenn á vellinum af því að íslensk menning var ekki tilbúinn fyrir þá.

 Yfir og út
VilliKötturinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 17:09:40 / wildcat

Þú komst með jólin til mín.....

Jamm jamm jamm, hó hó hó og jólahvaðsemþúsegirþáermammamínekkieplabananaísmeðdífuogrís. Nú er sko glatt á hjalla, tengdi skjávarpann góða í gærkvöldi og ætla að tengja heimabíóið í kvöld. Verður gríðargaman að horfa á kvikmyndir ofl. í þessum risaskjá !!!! Jólaundirbúningurinn er eiginlega bara alveg búin hvað mig varðar. Á líklega eftir að kaupa eina gjöf fyrir Allý, annars er allt klárt. Nýja starfið gengur glimrandi vel og kann ég mjög vel við mig hjá Hug. Læt kannski heyra meira í mér seinna í vikunni en allavegana þá er rjóminn búinn og ískápurinn frosinn við lærið á Guðmundi og ég er farinn heim í sloppinn !!! Yfir og út VilliKötturinn

» 92 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 16:15:44 / wildcat

Veggur skal rísa !!!

Jamm og jæja

Það hefur aldeilis verið mikið að gera hjá mér síðastliðna daga.  Við erum á fullu að leggja lokahönd á smíði veggsins sem Jón Örn hefur verið að hjálpa okkur við að byggja hérna á efri hæðinni á Álftanesinu og styttist óðum í að við Allý verðum orðin alveg útaf fyrir okkur hérna.  Það gengur mjög vel í nýja starfinu og er líka nóg að gera hjá manni í jólasveinabissnessnum með Ásgeiri Páli.  Ég keypti skjávarpa fyrir okkur Allý svo að við getum nýtt þennann nýja veggflöt sem var að skapast hérna :) og verður án efa gríðarleg stemmning að horfa á áramótaskaupið um áramótin í 85" skjá !!! 8)  Svo erum við að fara að fá borðstofuborðið okkar loksins núna 15. þannig að maður getur farið að bjóða ykkur öllum í matarboð :lol:

En ég held að þetta sé bara allt sem ég hef að segja í bili, bið að heilsa ykkur og öllum öðrum sem ég þekki....

Yfir og Út,
VilliKötturinn


» 83 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 13:50:34 / wildcat

Mér finnst rigningin góð !!

Góðan dag elsku vinir og vandamenn.

Í dag er góður dagur, byrjaði daginn á því að fara í messu í Grafarvogskirkju.  Var að syngja þar og spilaði Óli undir hjá mér á flygilin af einstakri snilld.  Friðrik var að predika og vorum við Óli fylgisveinar hans frá Íslensku Kristskirkjunni.  Þetta var frábær stund, glæsilegur barna- og unglingakór kirkjunnar sá um tónlistina í messunni og var það frábært hjá þeim.

Ætli maður reyni ekki að drífa þessar framkvæmdir hérna á efri hæðinni í Austurtúninu eitthvað af stað í dag svo maður verði nú búinn að þessu fyrir jól og geti farið að búa eins og fjölskylda með minni konu og köttum.

Yfir og út,
VilliKötturinn


» 70 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 23:55:32 / wildcat

Álftanesið skal mitt heimili heita !!

Jæja jæja, það er orðið aldeilis langt síðan kallinn bloggaði eitthvað og margt og mikið breyst í lífinu síðan.  Við hjónin erum búin að leggja undir okkur efri hæð einbýlishúss foreldra minna og erum að innrétta þar glæsilega íbúð.  Semsagt úr 101 í 225, það eru þokkaleg viðbrigði skal ég segja ykkur sáralitlar líkur á því að Lalli Johns geri sig heimkomin hérna og mjög ólíklegt að einhver drukkinn fari að gera þarfir sínar í garðinum hjá okkur og detti á svefnherbergisgluggann þar sem við búum á efri hæð núna ;) 

Svo er hin stóra fréttinn, ég er hættur í Tæknivali og er að fara að byrja aftur að vinna hjá því stórgóða fyrirtæki Hug, sem ég starfaði hjá í rúmt ár fyrir einhverjum 4 árum eða svo.  Gríðarleg spenna í gangi varðandi nýja starfið, byrja að vinna á nýja staðnum á þriðjudaginn, jibbý jei jibbý jibbý jibbý jei !!!!

Ég reyni kannski að blogga aðeins meira en ég hef gert á næstunni, læt ykkur vita þegar við Allý erum alveg búin að koma okkur fyrir og þið megið fara að streima í heimsókn í fallegasta útsýni á Íslandi.

Yfir og út Villtasti Köttur Íslands.


» 91 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 11:11:47 / wildcat

Búinn í fríi !!!!

Well well well

Þá er lífið aftur komið í sitt venjulega far, þ.e. maður er búinn með sumarfríið sitt og farinn að vinna aftur.  Það gerðist ýmislegt skemmtilegt í fríinu, litla fjölskyldan okkar Allýar var að stækka, við vorum að fá okkur tvo litla kettlinga.  Yndislegir litlir strákar sem heita Mowgli og Figaro, það er rosalega gaman að eiga svona kisur alltaf svo mikið fjör hjá þeim.

Jæja það er svo mikið að gera hjá mér í vinnunni að ég ætla ekki að blogga meira að þessu sinni.

Yfir og Út
VilliKötturinn (Kattapabbi)


» 100 hafa sagt sína skoðun

01.08.2005 17:34:05 / wildcat

Frídagur verslunarmanna !!!

Góðann daginn gott fólk.

Nú er verslunarmannahelgin mikla að baki og við hjónin komin heim eftir skemmtilega helgi.  Við slepptum því að gista á Flúðum og keyrðum í bæinn á laugardagskvöldinu og fórum síðan aftur á sunnudeginum og héldum uppá afmælið hennar mömmu í fellihýsinu hennar Kiddýar.  Við erum í mat hjá mömmu núna að fara að borða grillmat.  Yndislegt að ferðast í þessum bíl okkar, mamma og pabbi fóru með okkur á bílnum okkar uppeftir í gærdag, og það fór bara glettilega vel um okkur fjögur á leiðinni á Flúðir.  Nú eru fjórir vinnudagar þangað til að ég fer í frí og við Allý skellum okkur í bústað með foreldrum hennar og bræðrum.  Bústaðurinn er rétt hjá Húsavík og verður þetta eflaust snilldarvika, förum að veiða, sitjum í pottinum og gerum ýmislegt annað skemmtilegt.

Kveðja,
VilliKötturinn


» 102 hafa sagt sína skoðun

29.07.2005 09:39:21 / wildcat

Flöskudagurinn langi !!!

Já það má með sanni segja að í dag er flöskudagurinn langi í lífi margra og eru margir sem eru nú þegar byrjaðir að sjúga spenann á bakkusi og munu líklega ekki hætt fyrr en á mánudaginn þegar flöskudeginum langa er lokið. 

Jamm, jamm, jamm, við hjónin ætlum nú bara að taka því rólega um helgina.  Förum á laugardaginn í heimsókn til Kíddýar systur minnar þar sem hún er með fellihýsið sitt á flúðum.  Við gistum amk. eina nótt í litla kúlutjaldinu okkar sem verður með í för.  Annars verður bara tjillað að mestu leyti um helgina.

Hvað ætlar þú að gera um helgina ?  Commentaðu nú og segðu kallinum frá.....

Yfir og Út
VilliKötturinn á djúpu nótunum


» 111 hafa sagt sína skoðun

23.07.2005 10:29:58 / wildcat

Nú er ég sko aldeilis HLUSSA !!!!!

Jæja jæja, þið eigið aldrei eftir að trúa því hvað ég vaknaði við fyrir rúmum klukkutíma síðan !!!

Ég heyrði útidyrahurðinni skellt og eitthvað ókunnulegt fótatak heyrðist ganga upp stigann til afa.  Hurðin hjá afa var rifin upp og einhver ráfaði um íbúðina hjá honum og endaði inní eldhúsi.  Á þessu stig ákvað ég að koma mér í buxur og reyndi að læðast upp til að athuga hvort ekki væri allt með felldu.  Í sömu andrá heyrði ég rótað í klinkinu sem afi geymir uppá ísskápnum sínum og þá vissi ég að einhver ókunnugur væri kominn inn í húsið okkar.  Ég hélt samt ótrauður áfram upp stigann til að ég gæti borið kennsl á hann, ef hann myndi nú komast út áður en lögreglan kæmi á svæðið.  Ég sá að hurðin hjá afa var opin uppá gátt og læddist inn í íbúðina, kíkti fyrir hornið inn i eldhús og sá þar engann annann en stórstjörnuna Lalla Johns að troða vasana sína út með klinkinu hans afa.  Ég læddist aftur niður í íbúðina okkar, læsti og hringdi í lögregluna, sagði henni hvernig aðstæðurnar voru og að þeir þyrftu að drífa sig á staðinn.  Á meðan ég var að tala við lögregluna heyrði ég að hann var að reyna að komast inn hjá okkur og greip eina af golfkylfunum góðu til að ég gæti nú lamið úr honum líftóruna ef hann skildi komast inn og reyna eitthvað.  Sem betur fer hætti hann að reyna að opna og fór.  Stuttu seinna heyrði ég að lögreglan var mætt á svæðið.  Ég lýsti fyrir þeim manninum sem þau sögðu að hefði verið Lalli Johns og hlupu af stað til að reyna að hafa hendur í hárinu á manninum.  Nokkrum augnablikum síðar sá ég þau koma labbandi með Lalla á milli sín, hann hélt á gulum bónuspoka.  Þegar þau voru komin alveg að húsinu byrjaði Lalli að segja að hann hefði aldrei komið inní þetta hús en þegar í pokann var gáð kom regngallinn minn og húfan hennar Allýar í ljós.  Lalli sagðist nú bara hafa tekið þennann poka fyrir utan húsið okkar og þvertók fyrir það að hann hafi verið að brjótast inn, ég sagðist þá hafa séð hann fylla vasana af klinki en hann harðneitaði.  Á meðan löggan var að járna Lalla og setja hann í bílinn horfði hann á mig stingandi augnarráði eins og hann væri að reyna að drepa mig með augunum og ég starði bara á móti.

Já það líður sko ekki augnablik án spennu í 101 8|, í nótt var td. ölvaður maður sem datt á eldhúsgluggann hjá okkur og var næstum komin inn.

En nóg af spennusögum úr miðbæ Reykjavíkur.  Við hjónakornin erum að fara í 2 stykki brúðkaup í dag hvorki meira né minna, og er ég að syngja í báðum athöfnunum.  Fyrst förum við í brúðkaup til Jóhönnu frænku hennar Allýjar og Jóns Inga.  Seinna brúðkaupið er stórviðburður brúðkaupssumarsins.  Brúðkaup Þorvaldar Kristins Þorvaldsson eða Þorra eins og flestir þekkja hann og Árdísar, ég hlakka ótrúlega mikið til að vera viðstaddur þennann atburð í lífi þeirra.  Ég og Ásgeir Páll mágur minn vorum að klippa myndbandið úr steggjuninni hans Þorra og verður þetta snilldarvideo sýnt í veislunni á eftir, þar má td. sjá Þorra í andlitsmaska og Sundbol með sundhettu í Laugardalslauginni :)

Semsagt snilldarbyrjun á snilldardegi !!

Yfir og Út
VilliKötturinn


» 101 hafa sagt sína skoðun

22.05.2005 17:17:28 / wildcat

Tónleikunum frestað....

Jamm tónleikunum verður frestað um ókveðinn tíma, ætli við verðum ekki bara með þá í haust þegar flestir verða komnir aftur heim eftir frí og Biblíuskóla, reyndar er okkar kæri vinur Böddi að fara í lok júní í Biblíuskóla og verður hann því ekki að spila með okkur í haust.  Guð þarf að nota hann annarsstaðar og ég trúi að hann eigi eftir að verða mjög blessaður af þessari ferð og Guð á eftir að senda okkur einhvern til að leysa hann af á meðann hann er í burtu.

Jamm og jæja
VilliKötturinn


» 105 hafa sagt sína skoðun

10.05.2005 14:32:32 / wildcat

I'm alive !!!

Jamm ég er lífs en ekki liðinn, og mættur til vinnu eftir að hafa verið veikur síðan á fimmtudaginn.  Skellti mér reyndar veikur á samkomu á sunnudagskvöldið og uppskar það að vera veikur á mánudaginn og er ennþá smá slappur.  Sumarið er alveg að fara að koma ennþá soldið kalt úti en búið að vera yndislega fallegt veður uppá síðkastið.  Ég er farinn að stunda golfið af kappi, skellti mér á völl í fyrsta skiptið á miðvikudagskvöldið og stóð mig víst bara nokkuð vel að sögn þeirra sem voru að spila með mér.  Spilaði meira að segja eina holu á pari :)  Ætla að reyna að mæta í þetta golf dæmi hjá vinnunni á hverju miðvikudagskvöldi í sumar, svo hefur maður eitthvað verið að kíkja í Bása og skjóta nokkrum kúlum til að fínpússa sveifluna.

Það hefur verið ákveðið að halda tónleika í kirkjunni 28. maí næstkomandi, ég held að hugmyndin sé að þetta verði nokkurskonar kaffihúsatónleikar, létt og þægileg kvöldstund, hvet alla til að taka þetta kvöld frá því þetta á án efa eftir að vera mjög skemmtilegt.

Jammannnnnn !!!!
VilliKötturinn (hvæs)


» 85 hafa sagt sína skoðun

05.05.2005 22:36:10 / wildcat

Long Time No See !!

Jæja, það er aldeilis orðið langt síðan ég bloggaði síðast og mikið vatn hefur runnið til sjávar :)  Við Allý erum búin að vera veik í allann dag og höfum því haldið okkur innandyra sem er ekkert rosalega gaman þegar veðrið úti er eins fallegt og það var í dag svo misstum við líka af tónleikum með Maríu Magg á Rósenberg, en mér skilst að hún verði að spila aftur fljótlega þannig að við förum bara þá.  Fór á Dale Carnegie námskeiðið á mánudaginn og vann ræðukeppni þar sem við þurftum að halda 1 mínútu ræðu um hvernig við hefðum nýtt okkur það sem við erum að læra á námskeiðinu.  Gaman þegar maður fær einhverja viðurkenningu fyrir það sem maður er að gera, gefur manni smá boozt til að halda áfram og gera jafnvel enn betur.

Á þriðjudagskvöldið fór ég til Helgu og Jóns að laga biluðu tölvuna þeirra, þau fengu einhvern MSN vírus frá Þorra og þurfti ég að strauja vélina hjá þeim til að allt yrði gott aftur.  Þau voru að fá sér yndislega kisu sem ég er viss um að á eftir að líða vel hjá þeim.  Annars var ég að lesa að þau voru líka að fá nýja tölvu, til hamingju með það.

Við Allý erum að rækta köngulær í kjallaranum okkar sem er ekkert rosalega skemmtilegt, sáum eina risastóra húsakönguló á veggnum hjá okkur eitt kvöldið og fengum bæði vægt sjokk, frekar skuggalegt að sjá svona dýr allt í einu á veggnum hjá sér, þetta er víst bara einn af kostunum við það að búa í kjallara 8|

En annars er ekkert fleira að segja í bili
Yfir og út
VilliKötturinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 12:15:40 / wildcat

Monday monday.....

Jamm það er aftur kominn mánudagur og framundan er frábær vika.  Í gær var megasamkoma í kirkjunni, gestir úr hinum og þessum áttum, lofgjörðarhópur frá KFUM&K undir stjórn Keith Reed, frábært framtak hjá þeim.  Predikari kvöldsins var Dan Siemens sem er frábær náungi frá Lutheran Renewal, hann var að tala um hvísl Guðs og hvernig við getum heyrt í Guði þegar þurrkatímar standa yfir.  Gríðarlega góð predikun og virkilega átakanlegur vitnisburður sem hann deildi með okkur.

Dale Carnegie í kvöld, maður er ekki búinn að vera alveg nógu duglegur að læra heima fyrir Dallinn en samt búinn að skila af mér heimavinnunni.  Það er þokkalega mikið að lesa fyrir þetta en ég er samt alveg að sjá fyrir mér að þetta muni nýtast mér mjög vel.

Á fimmtudaginn sem er einmitt sumardagurinn fyrsti ætlum við að skella okkur til Hríseyjar þar sem við erum að fara í fermingarveislu á laugardeginum.  Verður gríðargaman að komast útúr bænum og fá smá frí og ég tala nú ekki um að fá að skoða fallegu eyjuna hans Gumma B í fyrsta skipti.  Svo kemur maður heim fyrir gestasamkomuna sem verður næsta sunnudagskvöld, ég hvet alla úr Íslensku Kristsskirkjunni og eru að lesa þetta til að taka með sér vini og ef þú ert ekki í Íslensku Kristskirkjunni og langar að kynna þér hvað það er sem við erum að gera endilega kíktu uppí Fossaleyni 14 á sunnudagskvöldið kl. 20.00 ég lofa að þú verður ekki fyrir vonbrigðum.

Yfir og út
VilliKötturinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2005 10:43:23 / wildcat

Gleðilegann mánudag :)

Gleðilegann mánudag öll sömul

Í dag er góður dagur, eins og reyndar flestir dagar.  Aftur farið að hlýna, frábær samkoma í gærkvöldi og Dale Carnegie námskeið í kvöld hvað getur klikkað.  Ég er ekki viss um að neitt geti klikkað enda er það bara ákvörðun hjá mér hvort ég læt eitthvað fara í taugarnar á mér eða ekki og í dag ætla ég að reyna með hjálp Guðs að láta ekkert fara í taugarnar á mér og reyna að lifa kvíðalausann dag, í Jesú nafni !!

Eins og ég sagði þá var samkoman í gærkvöldi alveg mögnuð, Halldór Lárusson ,eða Halldór Lár eins og flestir þekkja hann, var að predika og var með magnaðann ameríkanskí vin sinn með sér og þeir voru að tala um Passion eða ástríðu og eldmóð.  Alveg hreint mögnuð predikun og ekki var lofgjörðin af verri endanum þvílík smurning !!  Ég segi bara eins og hún Árný það er eitthvað að fara að gerast og bara spurning hvort þú vilt vera með eða ekki.

Dale Carnegie sölunámskeið í kvöld, verð á því næstu 8 vikurnar, bind miklar vonir við þetta námskeið.  Held að það geti hjálpað mér mikið í vinnunni og einkalífinu, tengdapabbi fór á svona námskeið og það hjálpaði honum mikið.

En allavegana,

Yfir og út
VilliKötturinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2005 12:48:01 / wildcat

Helgin er hafin !!

Top of the morning to ya lads !!!

Nú er ný helgi hafin og Mohawkinn er enn á sínum stað 8) .  Það verður ýmislegt gert þessa helgi, í augnablikinu er ég að horfa á Bold and the Beautiful sem er án efa leiðinlegasta sjónvarpsefni sem nokkurn tímann hefur verið framleitt, en hún Allý mín þarf endilega að horfa á þetta áður en við getum farið út að gera eitthvað skemmtilegt.  Við ætlum að taka röltið á Laugaveginum og kíkja í nýju búðirnar sem eru komnar.  Í kvöld erum við að fara að grilla með Helgu og Jóni útá nesi sem verður án efa hrein og tær snilld, hlakka mikið til.

Veit ekki alveg hvað við gerum á morgun en allavegana er gott að vera í fríi og hvíla sig smá.

Skellti mér á Nokia kynningu hjá Hátækni á miðvikudagskvöldið í boði Grétars, frábær matur og nýjasta tækni er eitthvað sem getur ekki klikkað fyrir utan það að það var happdrætti á staðnum þar sem dregnir voru út GSM símar.  Viti menn ég vann draumasímann minn sem ég er búinn að vera að dást að í nokkrar vikur, þvílíkt frábært.  Er búinn að fylla hann strax af allskyns drasli og kominn með Bluetooth headset ofl. skemmtilegt.

Jæja ég ætla að fara að finna mér eitthvað að gera áður en ég sprengi sjónvarpið í loft upp :)

Yfir og út
VilliKötturinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3